Warunki świadczenia usług
Almennt
Netflugur.is áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, sé vara ekki til á lager eða hafi rangar verðupplýsingar verið settar fram. Netflugur.is áskilur sér einnig rétt til að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vöru fyrirvaralaust.
Afhending vöru
Við bjóðum upp á nokkra mismunandi valmöguleika á afhendingu á vörum.
- Vörur er hægt að sækja samkvæmt samkomulagi.
- Hægt er að fá vörur afhentar á næsta afgreiðslustað Dropp, eða með heimsendingu á vegum Dropp.
- Sé pantað fyrir hádegi er hægt að nálgast vöruna síðar sama dag á afgreiðslustöðum Dropp á Höfuðborgarsvæðinu.
- Heimsending á Höfuðborgarsvæðinu er einnig samdægurs sé pantað fyrir hádegi. Vörur sem afhenda skal á landsbyggðinni eru afhentar næsta dag sé pantað fyrir hádegi. Annars næsta dag.
Um vörur sem dreift er af Dropp og Flytjanda gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Dropp um afhendingu vörunnar. Verði vara fyrir tjóni frá því að að hún er afhent frá okkur til flutningsaðila og þar til hún berst viðtakanda er tjónið á ábyrgð flutningsaðila.
Allar pantarnir að andvirði 10.000 kr. eða meira bera engan sendingarkostnað.
Frí heimsending á vörum nær til allra staða á Íslandi, en ekki til annara landa.
Skiptiréttur
Kaupandi hefur 30 daga til skipta vörunni að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í fullkomnu ástandi, í upprunalegum umbúðum og innsigli ekki rofið sé það til staðar. Vörum fæst skilað gegn inneignarnótu eða úttekt á öðrum vörum. Við skil á vöru er miðað við verð hennar þann dag sem hún var keypt. Sé viðkomandi vara á útsölu eða á sértilboði við vöruskil eða skipti, er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað. Vörum á Outlet er ekki hægt að skipta í aðrar vörur. Ef senda þarf vöruna til netflugur.is vegna skipta, þá stendur kaupandi straum af þeim sendingarkostnaði sem og af kostnaði vegna sendingar á annarri vöru til baka vegna skipta.
Endurgreiðsla
Vörur sem keyptar eru í netverslun og eru sendar heim til kaupanda, er hægt að fá endurgreiddar. Kaupandi hefur 14 daga til að fara fram á endurgreiðslu, að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í fullkomnu ástandi, í upprunalegum umbúðum og innsigli ekki rofið sé það til staðar. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda.
Sendingarkostnaður fæst ekki endurgreiddur. Ef senda þarf vörur til netflugur.is vegna vöruskila, þá stendur kaupandi straum af þeim sendingarkostnaði.
Netverð
Öll verð í netverslun innihalda virðisaukaskatt og eru í íslenskum krónum. Verð á netinu getur breyst án fyrirvara. Tilboð í gilda í sumum tilfellum eingöngu fyrir vefverslun.
Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar frá kaupanda verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.
Um skilmála þessa gilda ákvæði laga um húsgöngu- og fjarsölu nr. 96/1992, ákvæði laga um lausafjárkaup nr. 50/2000 eftir því sem við getur átt og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003. Allir frestir sem nefndir eru í lögum nr. 96/1992 byrja að líða er móttaka vöru á sér stað.
Persónuupplýsingar
Greiðslukortaupplýsingar eru geymdar á öruggum vefþjónum Borgunar, Netgíró og Pei, og geymir netflugur.is eða vefsíður á vegum netflugur.is engar greiðslukortaupplýsingar.
Netflugur.is fer eftir lögum númer 77/2000 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga.
Markaðsefni
Notendum gefst kostur á að skrá sig til að taka á móti markaðsefni í gegnum tölvupóst frá netflugur.is. Einungis verður sendur markaðspóstur á vegum netflugur.is og upplýsingar um notendur verður ekki deilt með þriðja aðila.
